mynd
::
::
::
::
 Heimasíða :: Sigrún G. Þormar - Bsc Oecon   Tlf/Sími:: Danmörk: 87 59 20 54 | Ísland: 847 5581
Email :: 
sigrun@sigrunthormar.dk
 

Húsnæði

Leiga:

Ykkur vantar húsnæði, hvar og hvernig á að sækja um það? Eru einhver hverfi betri eða verri en önnur? Hvernig er með húsaleigustyrk, hvað mikið getið þið fengið og hvernig eru reglur í sambandi við það? Hvað kostar að leigja? Er langur biðtími eftir húsnæði? Hvernig eigið þið að haga ykkur í þessu máli?

Ég hef nú í 5 ár tekið að mér að finna húsnæði fyrir íslenskar fjölskyldur sem eru að flytjast til Danmerkur. Á þessum tíma hef ég fengið mörg sambönd við útleigjendur um land allt og geri mér vel grein fyrir því hvaða kröfur íslendingar setja. Ég mun kappkosta að uppfylla sem flestar af ykkar séróskum, þó háð fyrirvara og framboði

  • Skrái ykkur í húsaleigufélög og vel úr viðunandi hverfi
  • Kem ykkur í forgangshóp þar sem það er mögulegt
  • Fylgi umsókninni frá upphafi til enda
  • Geng frá leigusamningi
  • Sæki lykla sé þess óskað
  • Aðstoða við að sækja um lán fyrir fyrirframgreiðslu (gildir aðeins ef leigt er hjá opinberu húsaleigufélagi)
  • Skoða húsnæði og sendi ykkur stafrænar myndir af húsnæðinu og umhverfi þess
  • Sendi upplýsingapakka um svæðið, sem inniheldur kort og bæklinga

Ég tek að mér að finna húsnæði um alla Danmörku, líka á Kaupmannahafnarsvæðinu. Hafið samband og fáið sendan verðlista

 

Kaup:

Hafið þið áhuga á að kaupa húsnæði? Vantar ykkur upplýsingar í sambandi við húsnæðislán, vexti, kostnað og annað sem hefur með kaup á húsnæði að gera? Þjónusta mín inniheldur meðal annars eftirfarandi:

  • Sko ða húsnæði
  • Met ástandsskýrslur
  • Sem um verð við fasteignasala
  • Sæki um leyfi til dómsmálaráðuneytis
  • Sé um fjármögnun
  • Geng frá kaupum með lögfræðingi EDC Aros í Árósum

Ég er með marga góða og trausta samstarfsaðila, þar á meðal; EDC fasteignakeðjuna, BRF lánastofnunina, ALM Brand bank og Danske Bank

Ég hef séð um kaup á fjölmörgum fasteignum fyrir íslendinga í Danmörku. Ég sé um að allt gangi fyrir sig eftir settum lögum og reglum. Geng frá kaupunum frá A til Ö sé þess óskað. Hafið samband og fáið sendar verðupplýsingar